Dagskrá 2026

Föstudagur 13. mars

Kl. 19:30 Opnun Deiglan

Laugardagur 14. mars

11:00 Örerindi og kynning á vinnustofum dagsins

12:00 Hádegismatur – Sólarpönksúpa An-Katrien í boði SUNN

12:30 – 15:00 Hvað er Sólarpönk? Samtal og umræður – málþing.
– Hvað er að vera Sólarpönkari? Diana Sus & Þuríður Helga Kristjánsdóttir
– Vistrækt og Sólarpönk:
Hildur Dagbjört frá Gróanda & Ingólfur og Indíana frá Sveitin okkar
– Leiðin út er inn:
Jóhanna Vilhjálmsdóttir & Stefanía Ólafsdóttir
– Listir, menning og annað pönk:
Jón Haukur Unnnarsson & Þórgnýr Dýrfjörð
– Framtíðin, nýsköpun og að sjá tækifæri:
Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir & Hjálmar Gíslason

12:45- 14:00 Vinnustofa á efri hæð í Deiglunni, (ath þessi vinnustustofa er á ensku og haldin samhliða málþinginu)
Creative writing: Ren frá Svartar bækur

14:00-16:00 Rösk, Listagilinu.
Börnum boðið að pönka upp gamla skó, gera hálsmen úr og fl.

15:00-17:00 Listasmiðjur og vinnustofur; ath nokkrar vinnustofur eru samhliða.

15:00 Skapandi fataviðgerðir! – Leið í átt að gjafahagkerfi og valdeflingu. Listasafnið á Akureyri
Á þessari vinnustofu getur þú lært að gera við föt á skapandi hátt.  Endilega taktu með flík sem þú værir til í að gefa lengra líf, það verða einnig flíkur á staðnum fyrir þá sem vilja taka þátt en hafa ekki flík meðferðis. Hildur Dagbjört hefur áralanga reynslu af allskyns fataviðgerðum, og hefur sérlega mikla unun af sýnilegum fataviðgerðum sem sýna með stolti að þessi flík býður hraðtísku og skipulagðri úreldingu (e. planned obsolescence) birginn. Fataviðgerðir eru sérstaklega valdeflandi þar sem við höfum hér skemmtilega leið til að skauta framhjá meiri fataframleiðslu og öllu sem fylgir því. Hugsaðu þér – þú getur jafnvel hætt alveg að kaupa föt og bara gert við!  Með hverri viðgerð eignast flíkin meiri sögu og fegurð – umhyggjan skín í gegn!  Það er alls ekki þörf fyrir að vera sérlega fær í saumaskap, í vinnustofunni getur þú lært allskonar einfaldar aðferðir. Fólk á öllum aldri er velkomið – gott ef börn koma í fylgd fullorðinna.

15:00 Guðrún og Hrafnhildur í Sjálfsrækt heilsumiðstöð bjóða upp á vinnustofu í sjálfsumhyggju í sal Sjálfsræktar Brekkugötu 3a.
Á vinnustofunni munu þær fræða þátttakendur um sjálfsumhyggju og ásamt því fá þátttakendur að gera gagnvirkar æfingar til að efla með sér sjálfsumhyggju. Í lok vinnustofunnar verður nærandi slökun með áherslu á mildi í eigin garð.Sjálfsrækt, Brekkugötu 3: Hrafnhildur og Guðrún

15:00 Tónlistarsmiðja með Dönu Ýr í Kaktus.

15:00 Grafíksmiðja, Stefán Bessason, Deiglan

Kl 16:00 Saga líkamanns, hvernig geymir líkaminn tilfinningar? Taugasálfræðileg ónæmisfræði, Diana Sus Deiglan.

17:00 Jarðarganga í Lystigarðinum. Leiðsögn: Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir

20:00 Strákurinn fákurinn í Kaktus
Strákurinn fákurinn er Akureysk hljómsveit sem spilar hamfara no wave. Meðlimir eru Agnieszka Staroń, Kęstutis Balčiūnas, Drengurinn fengurinn og Stefán Bessason. Í kjölfar tónleika er gestum frjálst að stíga á svið og láta ljós sitt skína. Trommur, gítar og bassi á staðnum en gestum er frjálst að koma með eigin hljóðfæri. Pönk frekar en færni!

Sunnudagur 15. mars

10:00-11:00 Deiglan: Meeting for Silence and Shared Reflection with Gillian

11:00 Sunnudansmorgun með Sigrúnu Björg Zumbakennara frá Húsavík. Sigrún deilir með okkur gleðinni sem fylgir því að dansa.

12:00 Amnesty International: vinnustofa um tilfinningar í aktívisma
Spjall við Eygló Árnadóttir, fræðslustýru, og Stefaníu Sigurdís Jóhönnudóttur, samfélagsmiðlafulltrúa Íslandsdeildar Amnesty.
Von er nauðsynleg allri mannréttindabaráttu en hvernig höldum við lífi í voninni þegar hörmungarfréttir dynja á úr öllum áttum?
Samkennd er grundvöllur mannréttindabaráttu en er hægt að auka samkennd fólks og fá þannig fleiri með í baráttuna?
Aðgerðastarf er undirstaða mannréttindabaráttu en hvað þegar orkan er uppurin? Eru litlar aðgerðir líka mikilvægar?
Er pláss fyrir jákvæðni í mannréttindabaráttu? Eða á mannréttindabarátta kannski engan sjens án jákvæðni?

14:00 Uppskera og ávextir
Samvera og spjall ásamt uppskeru af vinnustofum.

15:00 á Leyni Byrjendavæn kynning á lifandi kóðun tónlistar í Strudel með Lil Data á ensku.

Beginner-friendly introduction to live coding music in Strudel with Lil Data in english. No coding experience is necessary, simply come an learn the basics in a relaxed atmosphere. Bring headphones, laptop, charger and an open mind!