Er bjartsýni uppreisn? Þegar neikvæðni, ógn og tortryggni fylla fréttatíma og samfélagsmiðla má segja að bjartsýni sé orðin það sjaldgæf að hún sé pönk. Sólarpönk hugmyndafræðin hafnar þeirri orðræðu að mannkynið og jörðin sé óhjákvæmilega á leið í hrun og teiknar í staðinn upp framtíðarsýn þar sem við lifum í sátt við náttúruna og hvert annað.

Sólarpönk sprettur upp sem andsvar við heimsendaspám, auðhyggju og skeytingarleysi gagnvart jörðinni. Hún beinir athyglinni að því að manneskjan er skapandi, lífsglöð og ábyrg samfélagsvera sem vill láta gott af sér leiða. Í stað heimssýnar sem byggir á skorti og samkeppni, ótta og reiði, setur Sólarpönk fram bjartsýna heimsmynd þar sem samvinna, gnægð og fegurð eru í forgrunni.

Jákvætt hugarfar eykur víðsýni og hugmyndaflug. Virkjum ímyndunaraflið, sjáum fyrir okkur heiminn sem við viljum byggja og tökum skref í þá átt. Á Sólarpönk: Bjartsýnishátíð er lögð áhersla á að fjalla um það sem vel er gert í samfélaginu og sagt frá verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á fólk og náttúru. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast Sólarpönki, fara á vinnustofur, listasmiðjur og hlusta á reynslusögur. Fyrirlesarar koma úr ólíkum áttum samfélagsins, menningu og listum, skapandi greinum, nýsköpun, viðskiptalífinu, umhverfis- og grasrótarhreyfingum. Listrænir viðburðir verða samofnir dagskránni og gestum boðið að vera virkir þátttakendur í gegnum samtal og samsköpun.

Markmið hátíðarinnar er að kynna Sólarpönk hugmyndafræðina, efla bjartsýni, gleði og von í samfélaginu í gegnum samtal, sköpun og samveru ásamt því að vera mótvægi við neikvæða umræðu, vaxandi kvíða og einmanaleika.