
Myndir 2026
Myndir frá málþingi, vinnustofum og stemmingunni á Sólarpönk 2026.

Hvað er Sólarpönk?
Sagt verður frá verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á fólk, samfélög og náttúru. Fyrirlesarar koma úr ólíkum áttum, menningu og listum, skapandi greinum, viðskiptalífinu ásamt umhverfis- og grasrótarhreyfingum.

Vinnustofur & listasmiðjur
Gestir geta tekið þátt í fjölmörgum ólíkum vinnustofum, listrænum verkefnum og óformlegu spjalli og samveru. Til dæmis: Jarðarganga, tónlistarsköpun, vistrækt, grafík, slökun og skapandi skrif.

Sólarpönk
Sólarpönk er hugmyndafræði og hreyfing sem snýst um að skapa og ímynda sér heim þar sem við lifum í sátt og ræktum tengsl við náttúruna, samfélagið og okkur sjálf.

